Til Hönnu Birnu Kristjánsdóttur

February 26, 2008 by Ritstj.

Þitt fyrsta bros e. Ólafur Hauk Símonarson

Þú kveiktir von um veröld betri
mín von hún óx með þér.
Og myrkrið svarta vék úr huga mér um stund,
loks fann ég frið með sjálfum mér.

Það er svo undarlegt að elska
- að finna aftur til.
Að merkja nýjar kenndir kvikna,
að kunna á því skil
hvernig lífið vex og dafnar í myrkrinu.
Að hugsa um þig hvern dag, hverja nótt
er skylda sem ber umbunina í sjálfri sér.

Þitt fyrsta bros, þín fyrstu skref, þín fyrstu orð.
Þín fyrstu tár, þín fyrsta sorg, þín fyrsta hrösun.
Þín fyrsta ást, þinn fyrsti koss, þín fyrstu ljóð.
Mér finnst þú munir fæða allan heiminn alveg upp á nýtt.

Gangi þér vel að verða borgarstjóri, Hanna mín! 

Góðar stundir. 

Ritstj.

FJÓZ óskar lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla!

December 24, 2007 by Ritstj.

Ostroznsé!

December 18, 2007 by Ritstj.

Mbl.is 18. des. Innlendar fréttir:

Innlent | AP | 18.12 | 12:31

Ríkisstjórnin vill herinn heim

Forsætisráðherrann vill pólska herinn heim frá Írak.

Hin nýja ríkisstjórn Póllands fór fram á það við forseta landsins í morgun með formlegum hætti að herlið landsins yrði dregið til baka frá Írak fyrir októberlok á næsta ári. Forsetinn, Lech Kaczynski og forsætisráðherrans, Donald Tusk hafa deilt um veru pólska hersins í Írak.

Þessi frétt, eða öllu heldur staðsetning hennar á vef Mbl.is, virðist ótvírætt merki þess að Pólverjar eru orðinr margfalt fleiri hér á Íslandi en áður var talið. Mbl. telur allavega þörf á því að flokka fréttir af pólskum innanríkismálum sem innlenda frétt.

FJÓZ túlkar það þannig að Morgunblaðið sé orðið hápólitískt aftur, líkt og í kalda stríðinu, en að þessu sinni er það gengið til liðs við höfuðríki hins fyrrum Varsjárbandalags. Hljóðlát yfirtaka Póllands á Íslandi er hafin. Pólski herinn fer beint frá Írak til Íslands. Ostroznsé!

Ritstj.

Led Zeppelin O2 Arena Greenwich London 10.12.07

December 11, 2007 by Ritstj.

Need I say more…?

Og hér eru nokkrir extra YouTube stígvélaleggir.

Tónleikar ársins!

December 10, 2007 by Ritstj.

LZ

Led Zeppelin luku nú rétt í þessu við sögulega endurkomutónleika sína í O2 Arena (Millenium Dome) í London.

Hér til hægri er mynd af vef NME sem tekin var í hljóðprufu í dag. Sett-listinn í kvöld leit svona út:

Good Times Bad Times

Ramble On

Black Dog

In My Time Of Dying

For Your Life

Trampled Under Foot

Nobody’s Fault But Mine

No Quarter

Since I’ve Been Loving You

Dazed And Confused

Stairway To Heaven

The Song Remains The Same

Misty Mountain Hop

Kashmir

Whole Lotta Love

Rock And Roll

Umsagnir, myndir frá viðburðinum og vonandi mynbönd verða aðgengileg hér von bráðar.

Ps. Tónleikagestir virðast sammála:

“Storming set”

“Fantastic”

“Incredible moment”

“Awesome”

 

“Breathtaking”

 

“The atmosphere was electric…” 

 

Kannski maður hefði átt að reyna að ná í miða eftir allt saman…

 

Ritstj.

Loftrýmiseftirlit

December 5, 2007 by Ritstj.

Af mbl.is:

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að þeim þjóðum, sem munu taka þátt í loftrýmiseftirliti við Ísland, væri í sjálfsvald sett hvort orrustuflugvélar þeirra beri vopn í eftirlitsflugi.

Já. Loftrýmiseftirlit. Það hæðist engin að orðasmiðum hins opinbera…

Ritstj.

Múgíbúddíbúgívúgí

December 3, 2007 by Ritstj.

Mugi

Vinna þessa helgina. Sævar kom í heimsókn í safnið í gær og þáði rjúkandi kaffi og piparkökur. Brá mér síðan vestur á Akranes eftir vinnu og fór ásamt Sæva og Svenna á aldeilis prýðilega tónleika í Bíóhöllinni með Mugison og frábærri hljómsveit hans.

Flutt voru lög af nýrri skífu Mugi ásamt eldra efni og skemmtum við okkur hið besta. Mætingin hefði mátt vera aðeins betri, tæplega 90 manns í salnum að meðtöldum boðsgestum. Lýsi yfir vonbrigðum með Akurnesinga og nærsveitunga að fylla nú ekki Bíóhöllina þegar eitthvað bitastætt ber á fjörur.

Eftir tónleikana var ræddu staðarhaldarar um heimsókn annarar stórsveitar á milli jóla og nýárs á Akranesið, vonandi að það gangi eftir.

Fór með Svenson og Davíð Þór til baka í borgina. Lögðum seint af stað, komum við í æfingaaðstöðu Dabba og fengum okkur svo næturpylsur á Select. Var ekki kominn á koddann fyrr en um þrjúleytið og svaf aðeins  yfir mig í morgun.

Á föstudagskvöldið er jólagleði í vinnunni þar sem samankemur starfsfólk Bókasafnsins, Náttúrufræðistofu, Tónlistarskólans, Salarins og Gerðarsafns. Var plataður í smá kórsöng og jafnvel létt gítarglamur umrætt kvöld. Sjáum til hvernig æfingar ganga.

Ritstj.

Úr Es-dúr í C-dúr

December 1, 2007 by Ritstj.

Það sem fer hér fyrir neðan er af heimasíðu forsætisráðuneytisins:

LofsöngurLofsöngur2  

Ný útgáfa þjóðsöngsins

30.11.2007

Forsætisráðuneytið gefur á morgun, 1. desember, út nýja útgáfu þjóðsöngsins. Jón Kristinn Cortez tónlistarkennari hefur haft veg og vanda af útgáfunni fyrir hönd ráðuneytisins.

Á þessu ári eru 50 ár liðin síðan forsætisráðuneytið lét prenta í hefti þjóðsöng Íslendinga ásamt útsetningum tónskáldsins, Sveinbjörns Sveinbjörnssonar við texta Matthíasar Jocumssonar á laginu við þjóðsönginn og upplýsingum um tilurð hans. Í nýju útgáfunni hefur raddsvið söngsins verið lækkað úr Es-dúr, sem hefur reynst erfitt fyrir aðra en þjálfaða söngvara, í C-dúr, svo hann hæfi betur almennum einradda söng.

Þjóðsöngurinn kemur nú út í þremur heftum; fyrir blandaða kóra, karlakóra og svo kvennakóra ásamt skólakórum SA sem nota sömu útsetningarnar. Í öllum þessum heftum eru upphaflegar útsetningar kóranna ásamt útsetningu fyrir einradda söng með píanóundirleik í C-dúr. Auk þess eru þar upplýsingar um höfunda lags og ljóðs, um tilurð söngsins og útdráttur úr fánalögum og sögu skjaldarmerkisins.

Í karlakóraheftinu er að finna nýja raddsetningu, þannig út garði gerða að hana má syngja samhliða útsetningu blandaðs kórs, auk þess karlaraddir blandaðs kórs, og í hefti kvennakóra eru einnig kvenraddir blandaðs kórs.

Heftin, útgefin í um 12 þúsund eintökum, verða send öllum kórum landsins svo og öllum skólum og kirkjum. Tónlistarskólum verða einnig send hefti fyrir sinfóníusveit og lúðrasveit þar sem í eru raddskrár stjórnanda ásamt öllum hljóðfæraröddum.

Einnig er viðhafnarútgáfa fyrir einsöng með píanóundirleik í legu fyrir háar og lágar raddir og útgáfa með öllum útsetningunum auk þýðinga, á fimm tungumálum, á þjóðsöngnum og tilurð hans auk sögu fánans og skjaldarmerkisins á ensku. Verður sú útgáfa til opinberra gjafa.

Fyrirtæki Jóns Kristins, tónverkaútgáfan Ísalög hefur unnið þessa útgáfu ráðuneytisins og mun sjá um dreifingu heftanna.

Allar útsetningarnar er hægt að sækja á heimasíðu forsætisráðuneytisins.

Engum um að kenna nema mér sjálfum

November 25, 2007 by Ritstj.

Í tilefni af tilvonandi endurkomu hinnar goðsagnakenndu rokksveitar Led Zeppelin er rétt að rifja upp hvernig þeir hljómuðu á sínum síðustu tónleikum í Englandi.

Árið er 1979, dagurinn er 4. eða 11. ágúst og staðurinn er Knebworth Festival í Stevenage. Lagið er hið stórkostlega Nobody’s fault but mine sem kom út á Presence árið 1976, 7. og næst-síðustu stúdíóplötu Zep. Lagið var númer 4 í röðinni (á eftir The song remains the same, Celebration day og Black dog) bæði tónleikakvöldin.

Í kjöfarið fylgdu svo lögin Over the hills and far away, Misty mountain hop og Since I’ve been loving you ásamt 14 öðrum klassískum slögurum. Hefði alveg verið til í að vera viðstaddur… 

Er hræddur um að endurkoman nú árið 2007 verði í besta falli vonbrigði og í versta falli sár vonbrigði. En dæmum ekki fyrirfram heldur gefum þeim séns á að halda þessa tónleika (sem hugsanlega verða að tónleikaferð) en samkvæmt síðustu Reuters-fregnum mun Jason Bonham (sonur John’s) telja í þann 10. desember í London.

Sjáum svo til hvað tónleikagestir og pressan segir. Og vonum að Bonzo snúi sér ekki við í gröfinni…

 

 

Kean, Kane, Keane, McLaren, Mclaren, McClaren

November 22, 2007 by Ritstj.

FJÓZ tjáir sig ekki oft um íþróttir en undantekningin er til að sanna regluna.Íþróttafréttaritarar á fréttastofu Ríkisútvarpsins láta ekki hæðast að sér. Þeir margnefna menn í sömu frétt eins og sést hér fyrir neðan: » Frétt

Prenta fréttSenda frétt

Fótbolti: Keane gagnrýnir leikmenn

Roy Keane, knattspyrnustjóri Sunderland og fyrrum leikmaður Manchester United, segir marga leikmenn enska landsliðsins sjálfhverfa og að það sé aðal ástæða þess að þeir féllu úr leik í undankeppni Evrópumótsins. Hann segir ekki rétt að skella skuldinni á Steve McLaren, fyrrum þjálfara liðsins.

Keane þekkir Mclaren vel en hann var í þjálfarateymi Manchester United þegar Kean var þar á bæ. Kane sagði við BBC í dag það sé ótrúlegt að enska liðið hafi fallið úr leik miðað við þá hæfileka sem búa í leikmönnum liðsins.

Fara á fréttavef »

 

Roy heitir fyrst Keane (eins og öll hans fjölskylda), nokkrum línum síðar heitir hann Kean og aðeins fjórum orðum þar á eftir eru fréttaritarar Rúv búnir að nefna hann Kane! Bíð spenntur eftir Abel…Steve er svo í tilefni dagsins nefndur McLaren, síðan Mclaren en aumingja  maðurinn heitir náttúrlega McClaren. Eins og dagurinn hafi ekki verið honum nógu erfiður án þessa nafnaruglings Rúv manna.Ritstj.